Algengar spurningar
Hér finnurðu svör um sendingar, sóttar pantanir, gjafir og skil. Veldu spurningu til að sjá svarið.
Sendingar og sótt í verslun
Hvenær er pöntunin mín send?
Pantanir sem berast fyrir kl. 11:00 á virkum degi eru sendar samdægurs, annars næsta virka dag, að því gefnu að vörurnar séu tiltækar. Pantanir um helgar og á frídögum eru afgreiddar næsta virka dag.
Þetta er tíminn þar til pöntunin er send frá okkur. Afhending til þín fer eftir sendingarmáta og áætlun flutningsaðila.
Hvað kostar sending?
Sendingarmátar og kostnaður birtast í greiðsluferlinu þegar þú hefur skráð heimilisfangið. Frítt í póstbox/á afhendingarstað yfir 15.000 kr. Fyrirferðarmiklar vörur eru undanskildar.
Get ég sótt pöntunina í verslun?
Já, þú getur valið að sækja án sendingarkostnaðar í Grænatún 1, 200 Kópavogi. Bíddu eftir tölvupósti sem staðfestir að pöntunin sé tilbúin og hafðu pöntunarnúmerið meðferðis.
Sækja má á opnunartíma verslunarinnar. Sjá opnunartíma og staðsetningu.
Ég finn ekki pöntunarstaðfestinguna. Hvað geri ég?
Athugaðu fyrst ruslpóst og hvort netfangið í pöntuninni hafi verið rétt. Ef þú finnur staðfestinguna ekki skaltu hafa samband við okkur með nafni og netfanginu sem þú notaðir við kaupin.
Gjafir og gjafabréf
Get ég sent gjöf beint til viðtakanda?
Já, skráðu nafn og heimilisfang viðtakandans sem sendingarupplýsingar í greiðsluferlinu. Notaðu þitt eigið netfang fyrir pöntunarstaðfestingu.
Ef þú vilt skiptimiða eða gjafapökkun skaltu velja það í körfunni áður en þú ferð í greiðsluferlið. Hefurðu sérstakar óskir um gjöfina? Hafðu samband áður en þú pantar.
Hvernig fæ ég skiptimiða með gjöf?
Í körfunni geturðu merkt við Þetta er gjöf – skiptimiði fylgir hjá viðkomandi vöru. Skiptimiði kostar ekkert. Veldu þetta áður en þú gengur frá greiðslu.
Get ég fengið gjöfina pakkaða inn?
Þegar gjafapökkun er í boði geturðu valið hana í körfunni. Verðið birtist þar og gjafapökkun er bætt við einu sinni fyrir pöntunina. Veldu hana áður en þú ferð í greiðsluferlið.
Ef valkosturinn birtist ekki, eða þú ert með sérstakar óskir, skaltu hafa samband við okkur.
Get ég keypt rafrænt gjafabréf?
Já, gjafabréf Dótabúðarinnar eru rafræn og má nota í netversluninni. Á vörusíðunni geturðu valið fjárhæð og hvort senda eigi gjafabréfið í tölvupósti til viðtakanda, með kveðju og afhendingardegi.
Skil, skipti og kaup
Hvernig virka vöruskipti?
Hægt er að skipta vörum innan 90 daga frá kaupum. Varan þarf að vera ónotuð, með öllum fylgihlutum og í upprunalegum umbúðum. Komdu með kvittun, pöntunarnúmer eða skiptimiða í verslunina í Grænatúni 1.
Við þessi vöruskipti er miðað við gildandi söluverð á skiptadegi. Sjá skilmála skila og skipta.
Get ég skilað vöru sem ég keypti á netinu?
Þú hefur almennt 14 daga frá móttöku til að tilkynna að þú viljir falla frá netkaupum. Þetta er aðskilið frá 90 daga vöruskiptunum og endurgreiðslan miðast við það sem þú greiddir.
Í skila- og skiptastefnunni finnurðu leiðbeiningar um tilkynningu, endursendingu, endurgreiðslu og undantekningar. Hafðu samband ef þú þarft aðstoð.
Hvað ef vara er gölluð eða eitthvað vantar?
Hafðu samband við okkur og tilgreindu pöntunarnúmer, hvaða vara á í hlut og hvað er að. Við aðstoðum þig við næstu skref. Ekki senda vöruna til baka fyrr en við höfum rætt hvernig best er að ganga frá því.
Hvaða greiðslumátar eru í boði?
Þeir greiðslumátar sem eru í boði fyrir pöntunina þína birtast í greiðsluferlinu. Yfirfarðu sendingarmáta og heildarfjárhæð áður en þú staðfestir kaupin.
Fannstu ekki svarið?
Sendu okkur línu eða hringdu í 412 9900. Við hjálpum þér að finna réttu leiðina.