Dótabúðin – leikgleði fyrir alla fjölskylduna 💛
Allt frá eftirvæntingunni á meðgöngunni til fyrstu leikjanna, stórra hugmynda og nýrra áhugamála á unglingsárunum fylgjum við fjölskyldum í gegnum ólík æviskeið. Hjá okkur finnur þú ungbarnavörur og leikföng sem styðja við daglegt líf, vekja forvitni og gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn.
Sagan okkar hófst árið 2002 þegar Elísabet Ingvarsdóttir og Gunnar Hauksson stofnuðu Gullskóga ehf., félagið á bak við Dótabúðina. Elísabet hafði þá starfað í greininni allan sinn starfsferil og kom með reynslu, þekkingu og áhuga á því að hjálpa fjölskyldum að velja vandaðar vörur fyrir börnin sín.
Með tímanum bættist Sigríður Fanney Gunnarsdóttir í hópinn og síðar eiginmaður hennar, Miguel Flores. Í dag erum við sex sem stöndum að daglegu starfi Dótabúðarinnar. Við höfum ólík hlutverk en sameiginlegt markmið: að gera það ánægjulegt og auðvelt að finna réttu vörurnar fyrir börnin, hvort sem þú ert að undirbúa komu nýs fjölskyldumeðlims, leita að afmælisgjöf eða gleðja á venjulegum þriðjudegi.
Í versluninni okkar í Grænatúni 1 í Kópavogi finnur þú vandað úrval frá vinsælum vörumerkjum á borð við Chicco, Zuru, Smoby og Bayer Design. Þar eru mörg leikföng uppsett svo þú getir skoðað þau í návígi, og við tökum vel á móti þér með persónulegri þjónustu og aðstoð við valið.
Sama umhyggja fylgir pöntunum í netversluninni. Við leggjum okkur fram við að afgreiða þær fljótt og örugglega, oft samdægurs eða næsta virka dag. Á stórum afsláttardögum getur afgreiðslan tekið örlítið lengri tíma þegar mikið er að gera hjá okkur.
Velkomin í Dótabúðina – þar sem litlar hendur finna stór ævintýri og leikgleðin fær að vaxa. 💛
Gullskógar ehf. · kt. 701202-2790
Grænatún 1 · 200 Kópavogur
Opnunartími
Mán–fimmtudaga: 08:00–17:00
Föstudaga: 08:00–16:00
Laugardaga: 11:00–14:00
Sunnudaga: Lokað