Chicco dúkku Next2me rúm

Chicco dúkku Next2me rúm

6.790 kr
Fara í vöruupplýsingar
Chicco dúkku Next2me rúm

Chicco dúkku Next2me rúm

6.790 kr
Örugg greiðsla
Auðveld skil

Chicco Next2Me hliðar dúkkurúm með stillanlegri hæð og opnanlegri hlið.


Hægt að rugga eða hafa í fastri stöðu


Undir því er geymsluhólf fyrir dúkkuföt og fylgihluti.




Með Chicco Next2Me co-sleeper dúkkurúminu geta börnin haft uppáhaldsdúkkuna eða bangsann nálægt sér þegar kemur að háttatíma.


Þetta fallega leikfangarúm er smækkuð útgáfa af Chicco Next2Me hliðarrúmi, með málmgrind, stillanlegri hæð og raunverulegum smáatriðum sem gera leikinn ennþá skemmtilegri.


Opnanleg hlið 
Hliðin á dúkkurúminu opnast með rennilás og hægt að koma því fyrir við hliðina á rúmi barnsins. Þannig getur dúkkan eða bangsinn sofið við hlið barnsins, alveg eins og í alvöru Next2Me hliðarrúmi.


Ruggandi eða föst staða
Dúkkurúmið býður upp á tvær stillingar. Með því að breyta stöðu fótanna má velja hvort rúmið ruggi eða standi í fastri stöðu — tilvalið þegar barnið vill rugga dúkkunni sinni í svefn.


Þrjár hæðarstillingar og hentug geymsla
Hægt er að stilla hæð rúmsins í þrjár stöður. Undir rúminu er praktískt geymsluhólf úr efni fyrir dúkkuföt, leikföng og aðra fylgihluti, svo allt sé við höndina þegar kemur að umönnun dúkkunnar.


Auðvelt að setja saman og ganga frá
Málmgrindin er auðveld í samsetningu og engar skrúfur eða verkfæri þarf. Einnig er einfalt að leggja dúkkurúmið saman til að geyma það eða taka með.


Hlutverkaleikur sem eflir ímyndunaraflið
Chicco Next2Me dúkkurúmið býður upp á fjölbreyttan hlutverkaleik þar sem börnin skapa sínar eigin sögur og líkja eftir daglegum athöfnum fullorðinna.


Athugið: Þetta er leikfangarúm fyrir dúkkur og bangsa, ekki ungbarnarúm.

Þér gæti einnig líkað við