Starbox Nook Nooks

Star box Nook nook

3.380 kr
Fara í vöruupplýsingar
Starbox Nook Nooks

Star box Nook nook

3.380 kr
Örugg greiðsla
Auðveld skil

Starbox Nook Nooks hefur slegið í gegn um allam heim.

Litar krúttlegar fígúrúr sem búa í litlum skrýtnum húsum eins og sjónvarpi, þvottavél og fleiri hlutum sem finnast á flestum heimilum. 

Litlu húsin koma með LED lýsingu. Opnaðu kassan og uppgötvaðu hvaða dýr og smáheimur leynast inni i honum. Hver kassi inniheldur eina dýrafígúru, eitt upplýst smáhús og níu litla fylgihluti.

Skreyttu heimilið, raðaðu fylgihlutunum upp og búðu til þinn eigin smáheim.

Nook Nooks henta bæði til leiks og sem safngripir í hillu.

Fyrir 3 ára og eldri.

Varan kemur í "blind-box" og því veistu ekki hvað þú færð.

6 mismunandi fígúrur geta verði inn í kassanum og ein sjaldgæf fígúra sem er með líkurnar 1/128 að finna. 

Uppgötvaðu litlu heimana í Starbox Nook Nooks

Velkomin í heim Nook Nooks, þar sem krúttleg dýr eiga heima á óvæntustu stöðum! Kanína hefur komið sér makindalega fyrir í gamaldags sjónvarpi, forvitin mörgæs slakar á í ísskáp og syfjaður kapíbari tekur sér bað í þvottavél.

Hvert dýr býr í sínum eigin litla ævintýraheimi, með húsgögnum, plöntum og fylgihlutum sem þú getur raðað upp og leikið þér með.

Smáhúsin eru með LED-lýsingu sem gefur þeim hlýlegan blæ og lætur litlu heimana lifna við. Skreyttu heimilið, finndu uppáhaldsstaðinn fyrir dýrið þitt og leyfðu ímyndunaraflinu að ráða ferðinni.


Hvaða dýr færð þú?

Hver Starbox Nook Nooks kassi er óvænt uppgötvun. Varan kemur í lokuðum „blind box“ umbúðum, svo þú kemst ekki að því hvaða dýr og heimili bíða þín fyrr en þú opnar kassann.

Í fyrstu seríunni eru sex mismunandi Nook Nooks og ein ofursjaldgæf útgáfa og líkurnar til að finna hana er 1/128.  Hver útgáfa hefur sitt eigið dýr og hugmyndaríkt heimili. O


Búðu til heila byggð af smáheimilum

Nook Nooks eru gerð til að njóta sín saman. Blandaðu fylgihlutum úr ólíkum settum, færðu húsgögnin á milli herbergja og prófaðu nýjar uppstillingar. Með hverju heimili bætist nýr nágranni í litlu byggðina þína.

Stilltu safninu upp í hillu eða taktu dýrin með í leik. Hvort sem þú safnar einu uppáhaldsdýri eða mörgum smáheimum er alltaf eitthvað nýtt að uppgötva í Nook Nooks.


Þetta fylgir í hverjum kassa

  • Ein lítið nook nook dýr
  • Eitt smáhús með LED-lýsingu.
  • Níu litlir fylgihlutir fyrir heimilið.

Þér gæti einnig líkað við